Stafræn gerð

Úr Nordterm Wiki
Útgáfa frá 4. nóvember 2010 kl. 11:06 eftir Admin (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. nóvember 2010 kl. 11:06 eftir Admin (spjall | framlög)
Fara í flakkFara í leit

Ráðstefnurit Nordterm gerð stafræn

Árið 2005 hófst verkefni, með styrk frá Nordplus, sem miðar að því að vinna kerfisbundið að því að gera ráðstefnurit Nordterm stafræn og safna þeim saman í eina heild ásamt með textum um íðorðafræði og hagnýta íðorðavinnu. Slíkt heildarsafn myndi einnig þjóna þeim tilgangi að:

   * veita á einfaldan hátt ókeypis aðgang að greinum um ólík svið innan íðorðafræði (kenningar, aðferðir og hagnýt tilvik)
   * stafræn vinnsla og varðveisla innihaldsins auðveldar leit í ritunum, t.d. á sérhæfðu efni. Það hefur ekki verið mögulegt
áður þar sem í ritin vantar í flestum tilvikum bæði atriðaskrá og efnisyfirlit * gefa mynd af því hvernig kenning og aðferðafræði innan íðorðafræði hefur þróast í norrænu löndunum síðustu 20 árin * styrkja stöðu norrænna þjóða gagnvart íðorðafræði í Evrópu og e.t.v. hvetja til þess að þýða þessar norrænu greinar
á önnur tungumál.

Áhrif þess að gera þetta efni aðgengilegra verða mikil fyrir alla sem áhuga hafa á íðorðafræði og íðorðavinnu í norrænu löndunum og í öðrum löndum. Auðveldara verður fyrir áhugasama að ná í fjölda greina sem enn kann að vera áhugaverðar hvað varðar rannsóknir og menntun.

Íðorðamiðstöð TNC hefur í samráði og samvinnu við aðra aðilja Nordterm hafið verkið með því að skanna inn nokkur rit sem ekki eru lengur til sölu. Vinna við útgáfu þeirra á vefsíðum Nordterm verður unnin smám saman, m.a. vegna þess að enn vantar heimildir frá höfundum.