Munur á milli breytinga „Stafræn gerð“

Úr Nordterm Wiki
Fara í flakkFara í leit
[skoðuð útgáfa][skoðuð útgáfa]
(Ný síða: ==Ráðstefnurit Nordterm gerð stafræn== Árið 2005 hófst verkefni, með styrk frá Nordplus, sem miðar að því að vinna kerfisbundið að því að gera ráðstefnurit Nordterm...)
 
Lína 11: Lína 11:
  
Íðorðamiðstöð TNC hefur í samráði og samvinnu við aðra aðilja Nordterm hafið verkið með því að skanna inn nokkur rit sem ekki eru lengur til sölu. Vinna við útgáfu þeirra á vefsíðum Nordterm verður unnin smám saman, m.a. vegna þess að enn vantar heimildir frá höfundum.
 
 +
 +
 +
[[sv:Digitalisering]]
 +
[[fi:Digi]]

Útgáfa síðunnar 4. nóvember 2010 kl. 11:06

Ráðstefnurit Nordterm gerð stafræn

Árið 2005 hófst verkefni, með styrk frá Nordplus, sem miðar að því að vinna kerfisbundið að því að gera ráðstefnurit Nordterm stafræn og safna þeim saman í eina heild ásamt með textum um íðorðafræði og hagnýta íðorðavinnu. Slíkt heildarsafn myndi einnig þjóna þeim tilgangi að:

   * veita á einfaldan hátt ókeypis aðgang að greinum um ólík svið innan íðorðafræði (kenningar, aðferðir og hagnýt tilvik)
   * stafræn vinnsla og varðveisla innihaldsins auðveldar leit í ritunum, t.d. á sérhæfðu efni. Það hefur ekki verið mögulegt
áður þar sem í ritin vantar í flestum tilvikum bæði atriðaskrá og efnisyfirlit * gefa mynd af því hvernig kenning og aðferðafræði innan íðorðafræði hefur þróast í norrænu löndunum síðustu 20 árin * styrkja stöðu norrænna þjóða gagnvart íðorðafræði í Evrópu og e.t.v. hvetja til þess að þýða þessar norrænu greinar
á önnur tungumál.

Áhrif þess að gera þetta efni aðgengilegra verða mikil fyrir alla sem áhuga hafa á íðorðafræði og íðorðavinnu í norrænu löndunum og í öðrum löndum. Auðveldara verður fyrir áhugasama að ná í fjölda greina sem enn kann að vera áhugaverðar hvað varðar rannsóknir og menntun.